Sparkvellir - umgengnisreglur

Málsnúmer 2012050054

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 110. fundur - 10.05.2012

Tekin fyrir fyrirspurn sem barst í gegnum akureyri.is frá ungum knattspyrnuiðkanda um umgengnisreglur á sparkvöllum sem staðsettir eru við grunnskóla bæjarins.

Íþróttaráð minnir notendur sparkvallanna á að fara eftir þeim umgengnisreglum sem í gildi eru og hanga uppi við vellina. Þar kemur m.a. fram að eldri einstaklingum sé heimilt að nota völlinn ef hann stendur ónotaður en skuli víkja tafarlaust ef börn eða unglingar óska afnota af honum.

Íþróttaráð - 166. fundur - 09.04.2015

Farið yfir umgengnisreglur á sparkvöllum sem staðsettir eru við grunnskóla bæjarins.
Íþróttaráð minnir notendur sparkvalla á að fara eftir þeim umgengnisreglum sem í gildi eru og hanga uppi við vellina. Þar kemur m.a. fram að eldri einstaklingum sé heimilt að nota völlinn ef hann stendur ónotaður en skuli víkja tafarlaust ef börn eða unglingar óska afnota af honum.