Körfuknattleiksdeild Þórs - ósk um afnot af íþróttasal Glerárskóla sumarið 2012

Málsnúmer 2012040104

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 109. fundur - 26.04.2012

Erindi dags. 4. apríl 2012 frá Sigfúsi Ólafi Helgasyni f.h. Íþróttafélagsins Þórs þar sem óskað er eftir afnotum af íþróttasal í íþróttahúsi Glerárskóla frá 1. júní til 24. ágúst nk. Fyrirhugað er að starfrækja körfuboltaskóla fyrir unga iðkendur.

Að höfðu samráði við forstöðumann íþróttamiðstöðvar Glerárskóla samþykkir íþróttaráð að verða við beiðninni.