Grenilundur 25-27 - breytingar úti og inni

Málsnúmer 2012030180

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 390. fundur - 21.03.2012

Erindi dagsett 13. mars 2012 þar sem Haraldur Árnason f.h. Sigurðar Jónasar Baldurssonar og Guðrúnar Valdísar Eyvindsdóttur eigenda að Grenilundi 27 og Einars E. Sigurðssonar eiganda að Grenilundi 25, sækir um leyfi fyrir stækkun á timburverönd, breytingum á stéttum og tröppum, uppsetningu á gróðurhúsi og geymsluloft sett í bílgeymslur. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason og samþykki nágranna.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.