Nökkvasvæði v/ Drottningarbraut - leyfisveitingar fyrir skilti

Málsnúmer 2012030137

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 390. fundur - 21.03.2012

Erindi dagsett 13. mars 2012 þar sem Rúnar Þór Björnsson f.h. Siglingaklúbbsins Nökkva kt. 450979-0319, óskar eftir leyfi fyrir þremur auglýsingaskiltum á svæði félagsins við Drottningarbraut. Meðfylgjandi er ljósmynd og nánari skýringar.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið á grundvelli greinar 7.8.1 í samþykkt um skilti. Hámarksauglýsingaflötur má vera allt að 20 fermetrar og hámarksfjöldi skilta má vera allt að fimm.