Stapasíða 12 - umsókn um breytta skráningu á fasteign

Málsnúmer 2012020280

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 134. fundur - 14.03.2012

Erindi dagsett 27. febrúar 2012 þar sem Guðrún S. Kristinsdóttir og Valdís A. Cagnetti óska eftir að húseign þeirra að Stapasíðu 12 verði skipt upp og skráð sem fjórar eignir. Nánari skýringar eru í meðfylgjandi bréfi.

Samkvæmt samþykktum aðaluppdráttum eru tvær íbúðir samþykktar í húsinu. Skipulagsnefnd telur ekki hægt að skipta eigninni upp í fleiri eigarhluta þar sem stór hluti hússins er niðurgrafinn og án tilskyldra birtuskilyrða skv. lágmarkskröfum byggingarreglugerðar og er að auki í ósamræmi við gildandi byggingarskilmála sem gera ráð fyrir einbýlishúsum á svæðinu, þó svo að samþykkt hafi verið lítil aukaíbúð á neðri hæð nokkurra húsa. Skipulagsnefnd hafnar því erindinu.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 392. fundur - 11.04.2012

Erindi dagsett 22. mars 2012 þar sem Guðrún S. Kristinsdóttir og Valdís Alexia Cagnetti óska eftir að húseign þeirra að Stapasíðu 12 verði skipt upp og skráð sem tvær eignir. Nánari skýringar eru í meðfylgjandi bréfi.

Skipulagsstjóri tekur jákvætt í skiptingu eignarinnar í tvo hluta. Óskað er eftir uppfærðum aðaluppdráttum og skráningartöflu sem sýna skiptinguna. Tilkynning til Fasteignamatsins mun ekki fara fram fyrr en að undangenginni lokaúttekt og eftir að eignaskiptasamningur hefur verið gerður.  

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 407. fundur - 26.07.2012

Erindi dagsett 4. júlí 2012 þar sem Guðrún S. Kristinsdóttir og Valdís Alexia Cagnetti óska eftir yfirferð á teikningum til að hægt sé að gera eignaskiptasamning um skiptingu á fasteign þeirra að Stapasíðu 12 í tvær eignir. Meðfylgjandi eru teikningar og eignaskiptasamningur frá VSB verkfræðistofu.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 417. fundur - 17.10.2012

Erindi dagsett 27. febrúar 2012 þar sem Guðrún S. Kristinsdóttir og Valdís Alexia Cagnetti óska eftir að húseign þeirra að Stapasíðu 12 verði skipt upp og skráð sem tvær eignir. Nánari skýringar eru í meðfylgjandi bréfi. Innkomnar teikningar og leiðrétt gögn 11. október 2012.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

 

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 420. fundur - 07.11.2012

Erindi dagsett 27. febrúar 2012 þar sem Guðrún S. Kristinsdóttir og Valdís Alexia Cagnetti óska eftir að húseign þeirra að Stapasíðu 12 verði skipt upp og skráð sem tvær eignir. Nánari skýringar eru í meðfylgjandi bréfi. Innkomnar teikningar og leiðrétt gögn 11. október 2012.
Innkomnar nýjar teikningar 1. nóvember 2012.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.