Huldugil 74 - umsókn um lóðarstækkun

Málsnúmer 2012010263

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 392. fundur - 11.04.2012

Erindi dagsett 4. apríl 2012 þar sem Snorri Bergsson og Guðný Kristín Heiðarsdóttir sækja um stækkun á lóð sinni að Huldugili 74 í samræmi við núgildandi deiliskipulag Giljahverfis eins og fram kemur á meðfylgjandi lóðarblaði.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.