Urðargil 28 - Umsókn um lóðarstækkun

Málsnúmer 2012010075

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 380. fundur - 11.01.2012

Erindi dagsett 8. júlí 2009 þar sem Davíð Eyfjörð Reynisson og Ingibjörg Stefánsdóttir sækja um stækkun á lóð sinni að Urðargili 28. Stækkunin nemi 3,4 m í suður 4,5 m í vestur.

Skipulagsstjóri samþykkir stækkun á lóðinni í samræmi við gildandi deiliskipulag. Lóðarskrárritara falið að láta þinglýsa yfirlýsingu um breytta lóðarstærð skv. nýju lóðarblaði.