Langahlíð 1 F - umsókn um leyfi til að stækka bílastæði og fella ösp

Málsnúmer 2011110126

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 375. fundur - 30.11.2011

Erindi dagsett 23. nóvember 2011 þar sem Grétar Ingvarsson Lönguhlíð 1F sækir um leyfi til að fella stóra ösp og stækka bílastæði við enda raðhússins að Lönguhlíð 1 A-F. Meðfylgjandi er afstöðumynd og skriflegt samþykki íbúa hússins.

Skipulagsstjóri samþykkir stækkun á bílastæði og vísar ósk um fellingu á ösp til verkefnastjóra umhverfismála á framkvæmdadeild Akureyrarbæjar.