Grunnskólinn í Grímsey - ósk um mötuneyti

Málsnúmer 2011110083

Vakta málsnúmer

Skólanefnd - 33. fundur - 21.11.2011

Erindi dags. 8. nóvember 2011 frá foreldrum og forráðamönnum nemenda í Grunnskólanum í Grímsey þar sem eindregið er óskað eftir því að sett verði upp mötuneyti við skólann.

Skólanefnd samþykkir að fela skóladeild að gera áætlun um rekstur skólamötuneytis í Grímseyjarskóla og leggja fyrir nefndina.