Fjölnisgata 6 - umsókn um leyfi fyrir breytingum innanhúss

Málsnúmer 2011090140

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 367. fundur - 05.10.2011

Erindi dagsett 29. september 2011 þar sem Gunnar Björn Þórhallsson f.h. Bjarkaness ehf., kt. 671107-0710, sækir um byggingarleyfi til að stækka milliloft fyrir kaffistofu og að gera aðrar breytingar að Fjölnisgötu 6, rými d. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.