Óseyri 1a - umsókn um stöðuleyfi sumarhúss

Málsnúmer 2011090094

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 367. fundur - 05.10.2011

Erindi dagsett 21. september 2011 þar sem Rögnvaldur Harðarsson óskar eftir stöðuleyfi til að byggja sumarhús til flutnings á lóð nr. 1a við Óseyri. Meðfylgjandi er afstöðumynd og teikning af húsinu. Innkomin ný teikning 3. október 2011.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 390. fundur - 21.03.2012

Erindi dagsett 21. september 2011 þar sem Rögnvaldur Harðarsson óskar eftir stöðuleyfi til að byggja sumarhús til flutnings á lóð nr. 1a við Óseyri. Meðfylgjandi er afstöðumynd og teikning af húsinu. Innkomið samþykki lóðarhafa 15. mars 2012.

Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi til eins árs.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 490. fundur - 30.04.2014

Erindi dagsett 21. sept. 2011 þar sem Rögnvaldur Harðarsson óskar eftir stöðuleyfi til að byggja sumarhús til flutnings á lóð nr. 1a við Óseyri. Stöðuleyfi var veitt til eins árs eða 1. apríl 2013.
Skipulagsstjóri bendir umsækjanda á að láðst hefur að sækja um framlenginu á stöðuleyfinu og bendir á að sækja þarf um endurnýjun á leyfinu eða fjarlægja húsið að öðrum kosti fyrir 15. maí 2014.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 492. fundur - 14.05.2014

Erindi dagsett 6. maí 2014 þar sem Rögnvaldur Harðarson óskar f.h. byggjenda eftir framlengingu á stöðuleyfi fyrir sumarhús í byggingu sem stendur á lóð nr. 1a við Óseyri.
Skipulagsstjóri samþykkir að framlengja stöðuleyfi til 15. ágúst 2014.