Mið- og framhaldsnám í söng og framhaldsnám á hljóðfæri við Tónlistarskólann á Akureyri

Málsnúmer 2011090068

Vakta málsnúmer

Skólanefnd - 34. fundur - 05.12.2011

Fyrir fundinn var lögð afgreiðsla Jöfnunarsjóðs á umsókn Tónlistarskólans á Akureyri vegna nemenda í mið- og framhaldsnámi í söng og framhaldsnámi á hljóðfæri. Einnig var lögð fyrir fundinn kostnaðaráætlun vegna kennslu og stjórnunar í þessu námi hjá skólanum. Fram kemur að fyrirliggjandi framlög frá ríkinu duga ekki fyrir áætluðum kostnaði.

Skólanefnd samþykkir að taka málið til frekari umfjöllunar á nýju ári.