Daggarlundur 9 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2011090030

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 364. fundur - 14.09.2011

Erindi dagsett 7. september 2011 þar sem Jóhann B. Bjarnason og Elva Rut Þorleifsdóttir sækja um lóð nr. 9 við Daggarlund, til vara Daggarlund 11. Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu frá Landsbankanum Akureyri.

Skipulagsstjóri samþykkir að veita umsækjanda lóð nr. 9 við Daggarlund. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.