Þórunnarstræti 115 - stöðuleyfi fyrir sumarhús

Málsnúmer 2011080102

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 362. fundur - 31.08.2011

Erindi móttekið 29. ágúst 2011 þar sem Börkur Þór Ottósson og Ester Stefánsdóttir sækja um stöðuleyfi veturinn 2011-2012 fyrir sumarhúsi við hús nr. 115 við Þórunnarstræti. Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda og afstöðumynd.

Skipulagsstjóri hafnar erindinu. Í byggingarreglugerð er ekki heimild fyrir frístundahúsum á íbúðarhúsalóðum hvorki til lengri né skemmri tíma.