Hamraborgir 146934 - umsókn um niðurrif

Málsnúmer 2011080073

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 361. fundur - 24.08.2011

Erindi dagsett 18. ágúst 2011 þar sem Dóra Sif Sigtryggsdóttir f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um að rífa bragga með auðkennisnúmer 214-4493, sem stendur á Hamraborgum.
Skipulagsstjóri samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki byggingarinnar verði fjarlægð, þ.e. plata og sökklar sem standa upp úr jörð, og að svæðið verði grætt upp. Niðurrifið verður tilkynnt til Þjóðskrár Íslands eftir að úttekt hefur farið fram skv. 16. gr. Mannvirkjalaga.