Ljómatún 3 - 202 - umsókn um byggingarleyfi fyrir garðskúr á svölum

Málsnúmer 2011080021

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 359. fundur - 10.08.2011

Erindi dagsett 9. ágúst 2011 þar sem Grétar Berg Hallsson sækir um byggingarleyfi fyrir garðskúr uppi á svölum annarrar hæðar við íbúð sína að Ljómatúni 3, íbúð 202. Meðfylgjandi eru ljósmyndir og skriflegt samþykki íbúa raðhússins.

Garðskúr eins og sótt er um, er skilgreindur sem lausamunur staðsettur á lóð og eru því ekki gerðar sömu kröfur til garðskúra og almennra viðbygginga. Skipulagsstjóri getur því ekki samþykkt garðskúr upp á svalarými byggingarinnar vegna sambrunahættu. Erindinu er því hafnað.