Kjarnagata 12-14 - umsókn um leyfi fyrir mastri

Málsnúmer 2011060113

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 354. fundur - 29.06.2011

Erindi dagsett 24. júní 2011 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Búseta, húsnæðissamvinnufélags, kt. 560484-0119, sækir um leyfi til uppsetningar á fjarskiptamastri Vodafone á þak Kjarnagötu 14. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson, dagsettar 24. júní 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið með fyrirvara um samþykki Isavia.