Þingvallastræti 34 - umsókn um stækkun bílastæðis

Málsnúmer 2011060078

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 353. fundur - 22.06.2011

Erindi dagsett 21. júní 2011 þar sem Sigurbjörg Hlöðversdóttir sækir um leyfi til að stækka bílastæði við hús sitt að Þingvallastræti 34. Meðfylgjandi er afstöðumynd.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir 6 metra bílastæði. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Jafnframt greiði umsækjandi kostnað við úrtak úr kantsteinum/gangstétt.