Strandgata 12- Hof - umsókn um fánastangir

Málsnúmer 2011060076

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 353. fundur - 22.06.2011

Erindi dagsett 21. júní 2011 þar sem Magnús Garðarsson f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um að koma fyrir fánastöngum sem munu bera fána fyrir Upplýsingamiðstöðina yfir sumarmánuðina. Meðfylgjandi er afstöðumynd og ljósmynd. Einnig er sótt um að setja upp fánaborða á ljósastaurinn sem er beint fyrir framan aðalinnganginn í Hof við norðvestur gatnamótin.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir leyfi fyrir 2 fánastöngum enda sé um hefðbundna stærð fána að ræða. En getur ekki orðið við uppsetningu á fánaborða.