Strandgata 53 - viðburðarskilti

Málsnúmer 2011060067

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 353. fundur - 22.06.2011

Erindi dagsett 16. júní 2011 þar sem Ásdís Ásmundsdóttir f.h. Bifreiðastöðvar Oddeyrar ehf., kt. 440169-6949, óska eftir að setja tímabundið upp viðburðarskilti þegar skemmtiferðaskip eru hér við bryggju, að Strandgötu 53 og á Tangabryggju.

Staðgengill skipulagsstjóra gefur samþykki fyrir einu viðburðaskilti upp við húsið Strandgötu 53 og öðru við göngustíg frá Tangabryggju.  Viðburðaskiltin skulu eingöngu gefa upplýsingar um ferðir í boði og skulu aðeins vera uppsett á komutíma skemmtiferðaskipa.