Kambsmýri 12 - umsókn um byggingarleyfi fyrir gróðurhúsi

Málsnúmer 2011060029

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 351. fundur - 08.06.2011

Erindi dagsett 8. júní 2011 þar sem Jóhann Thorarensen sækir um að reisa lítið gróðurhús, 3x7m að flatarmáli, á lóð sinni að Kambsmýri 12. Meðfylgjandi er afstöðumynd.

Staðgengill skipulagsstjóra frestar erindinu. Óskað er eftir tillöguteikningum sem sýna grunnmynd húss, útlit og staðsetningu þess á lóð til að leggja fyrir skipulagsnefnd.