Klettaborg 4 - fyrirspurn um leyfi fyrir byggingu bílgeymslu

Málsnúmer 2011050133

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 115. fundur - 01.06.2011

Erindi dagsett 23. maí 2011 þar sem Olga Siminyakina leggur fram fyrirspurn um hvort byggingarleyfi og lóðarstækkun fáist fyrir bílgeymslu á lóðinni að Klettaborg 4. Meðfylgjandi er afstöðumynd og skriflegt samþykki annarra eigenda Klettaborgar 4.

Skipulagsnefnd tekur jákvætt í byggingu bílgeymslu og einnig í lóðarstækkun til vesturs. Óskað er eftir nánari teikningum og útfærslu á lóðarstækkun sem gerð verði í samráði við skipulagsdeild og lögð fyrir nefndina að nýju.