Kotárborgir - umsókn um tímabundin afnot af landi

Málsnúmer 2011050074

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 115. fundur - 01.06.2011

Erindi dagsett 13. maí 2011 þar sem Leó Fossberg Júlíusson sækir um tímabundin afnot af svæði við gömlu steypustöðina í vestanverðum Kotárborgum til losunar og geymslu á slegnu grasi frá júní 2011 til september 2011. Meðfylgjandi eru nánari skýringar og ljósmyndir.

Skipulagsnefnd í samráði við framkvæmdadeild telur að umsækjandi eigi að geta nýtt sér opnunartíma móttökustöðva til losunar grass og hafnar því erindinu.