Gúmmíkurl á gervigrasvöllum

Málsnúmer 2011050027

Vakta málsnúmer

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 189. fundur - 27.05.2011

Rætt um gúmmíkurl sem notað er í gervigrasvöllum. Lögð fram skýrsla frá dönsku umhverfisstofnuninni um áhrif gúmmíkurls sem unnið er úr dekkjum á heilsu og umhverfi. Einnig lögð fram svör umhverfisráðherra við fyrirspurnum Sivjar Friðleifsdóttur um málið.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar mun fylgja fyrirmælum opinberra aðila um endurnýjun á gúmmíkurli á gervigrasvöllum þegar kemur að eðlilegri endurnýjun gervigrassins.