Hjalteyrargata 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir rampa

Málsnúmer 2011030067

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 340. fundur - 16.03.2011

Erindi dagsett 7. mars 2011 þar sem Atli Jóhann Guðbjörnsson f.h. Leifs Eiríkssonar ehf., kt. 561205-0510, sækir um byggingarleyfi fyrir byggingu ramps fyrir flutningabíla við norðurenda hússins að Hjalteyrargötu 2. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Atla Jóhann Guðbjörnsson, dagsettar 1. mars 2011.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 343. fundur - 06.04.2011

Erindi dagsett 7. mars 2011 þar sem Atli Jóhann Guðbjörnsson f.h. Leifs Eiríksson ehf., kt. 561205-0510, sækir um byggingarleyfi fyrir byggingu ramps fyrir flutningabíla norðan við Hjalteyrargötu 2. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Atla Jóhann Guðbjörnsson. Innkomnar nýjar teikningar 5. apríl 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.