Vestursíða 9 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2011020122

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 109. fundur - 23.02.2011

Önnur mál:
Erindi dags. 20. febrúar 2011 frá Guðríði Friðriksdóttur þar sem hún f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um lóðina nr. 9 við Vestursíðu til að byggja á hjúkrunarheimili.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið. Skipulags- og byggingarskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.