Borgarbraut - Merkigil. Öryggismál.

Málsnúmer 2011020104

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 109. fundur - 23.02.2011

Í innsendum tölvupósti dags. 13. febrúar 2011 frá Stellu Gústafsdóttur, Vestursíðu 6c, er vakin athygli á slysum sem hafa orðið á gatnamótum Borgarbrautar og Merkigils.
Óskað er eftir úbótum á gatnamótunum.

Skipulagsnefnd óskar eftir við framkvæmdadeild að í samráði við skipulagsstjóra verði unnin tillaga að úrbótum á gatnamótum Borgarbrautar og Merkigils, með því markmiði að auka umferðaröryggi. Tillagan verði lögð fyrir nefndina.