Eyjafjarðarbraut - 147549 - Akureyrarflugvöllur Reyndarteikningar og eldvarnir.

Málsnúmer 2011020090

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 338. fundur - 02.03.2011

Erindi dagsett 16. febrúar 2011 þar sem Steinmar Rögnvaldsson f.h. Norlandair ehf., kt. 590106-2830, leggur inn reyndarteikningar með breytingum og brunavörnum í flugskýli 147549 á Akureyrarflugvelli. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Steinmar Rögnvaldsson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 340. fundur - 16.03.2011

Erindi dagsett 16. febrúar 2011 þar sem Steinmar Rögnvaldsson f.h. Norlandair ehf., kt. 590106-2830, leggur inn reyndarteikningar með breytingum og brunavörnum fyrir flugskýli 147549 á Akureyrarflugvelli. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Steinmar Rögnvaldsson. Innkomnar nýjar teikningar 11. mars 2011.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 343. fundur - 06.04.2011

Erindi dagsett 15. mars 2011 þar sem Steinmar Rögnvaldsson f.h. Norlandair ehf., kt. 590106-2830, óskar eftir samþykkt á breytingum á áður samþykktum teikningum fyrir flugskýli 11 við Eyjafjarðarbraut. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar Rögnvaldsson dagsettar 16. mars 2011. Innkomnar nýjar teikningar 30. mars 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.