Leikskólinn Kiðagil - ósk um breytingu á námskeiðsdegi

Málsnúmer 2011020086

Vakta málsnúmer

Skólanefnd - 4. fundur - 21.02.2011

Erindi dags. 15. febrúar 2011 frá Snjólaugu Brjánsdóttur skólastjóra Kiðagils f.h. starfsmanna þar sem óskað er eftir því að námskeiðsdagur Kiðagils verði haldinn þann 29. apríl 2011 í stað 26. apríl 2011 vegna fyrirhugaðrar ferðar til Reykjavíkur.

Skólanefnd samþykkir erindið, enda liggur fyrir samþykki foreldra.