Hamrar 2 - umsókn um byggingarleyfi og breytingar.

Málsnúmer 2011020072

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 109. fundur - 23.02.2011

Erindi dags. 15. febrúar 2011 þar sem Valþór Brynjarsson f.h Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um byggingarleyfi fyrir aðstöðuhús að Hömrum 2. Sótt er um tímabundið stöðuleyfi fyrir húsinu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson. Innkomin umsögn frá Vinnueftirlitinu 21. febrúar 2011.

Skipulagsnefnd veitir stöðuleyfi fyrir aðstöðuhúsinu til eins árs og felur skipulagsstjóra að afgreiða umsókn um byggingarleyfi.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 338. fundur - 02.03.2011

Erindi dagsett 15. febrúar 2011 þar sem Valþór Brynjarsson f.h Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um byggingarleyfi fyrir aðstöðuhús að Hömrum 2. Sótt er um tímabundið stöðuleyfi fyrir húsinu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson. Innkomin umsögn frá Vinnueftirlitinu 23. febrúar 2011. Innkomin umsögn frá Heilbrigðiseftirlitinu 23. febrúar 2011.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 343. fundur - 06.04.2011

Erindi dagsett 15. febrúar 2011 þar sem Valþór Brynjarsson f.h Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um byggingarleyfi fyrir aðstöðuhús að Hömrum 2. Sótt er um tímabundið stöðuleyfi fyrir húsinu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson. Innkomin umsögn frá Vinnueftirlitinu 23. febrúar 2011. Innkomin umsögn frá Heilbrigðiseftirlitinu 23. febrúar 2011. Innkomnar nýjar teikningar 30. mars 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra veitir tímabundið leyfi til eins árs.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 359. fundur - 10.08.2011

Erindi dagsett 30. júní 2011 þar sem Fasteignir Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækja um að vera byggingarstjóri yfir framkvæmdum að Hömrum 2. Umboð hefur Jón Hermann Hermannsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 478. fundur - 30.01.2014

Erindi dagsett 23. janúar 2014 þar sem Guðni Helgason f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af þjónustuhúsi við Hamra 2 (landnr. 146936). Meðfylgjandi eru gátlisti, tilkynning um hönnunarstjóra og teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.