Félags- og þjónustumiðstöðvar Víðilundi og Bugðusíðu - gjaldskrá 2011

Málsnúmer 2010110037

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 1112. fundur - 10.11.2010

Olga Ásrún Stefánsdóttir forstöðumaður kynnti tillögu að breytingu á gjaldskrá félags- og þjónustumiðstöðva aldraðra.
Lagt er til að verð á hádegisverði hækki úr kr. 800 í kr. 840 eða um 5%, vegna kostnaðarhækkana. Ennfremur er lagt til að gjaldskrá veitinga verði sundurliðuð meira en verið hefur, þannig að notendum standi til boða meira val. Að öðru leyti er lagt til að gjaldskrá verði óbreytt.

Félagsmálaráð samþykkir tillögu um hækkun gjaldskrár og vísar henni til bæjarráðs.