Ráðning í stöður stjórnenda og kennara í leikskólum án auglýsinga

Málsnúmer 2010060110

Vakta málsnúmer

Skólanefnd - 14. fundur - 16.08.2010

Lagt fram til kynningar bréf dags. 15. júní 2010 frá formönnum Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla, þar sem áréttað er ákvæði kjarasamnings KÍ og LN um að öll störf skuli auglýst laus til umsóknar á opinberum vettvangi. Þá er bent á að eina undanþágan frá þessari skyldu sé þegar um tímabundin afleysingastörf sé að ræða.