Fjárhagsáætlun 2010 - endurskoðun

Málsnúmer 2009100014

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 1108. fundur - 22.09.2010

Fjallað um beiðni Karólínu Gunnarsdóttur starfandi framkvæmdastjóra fjölskyldudeildar dags. 20.september 2010 um 10 milljóna aukningu á fjárveitingu á árinu 2010 vegna aukinna útgjalda í fjárhagsaðstoð.
Ennfremur fjallað um beiðni Kristínar Sigursveinsdóttur framkvæmdastjóra búsetudeildar dags. 21. september 2010 um breytingu á fjárhagsáætlun vegna þjónustusamnings um málefni fatlaðra, annars vegar hækkun á tekjuáætlun og hins vegar vegna nýs verkefnis sem bættist við á árinu.

Félagsmálaráð samþykkir beiðnirnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs.