- Þjónusta
- Menntun
- Samgöngur og slökkvilið
- Umhverfismál
- Skipulag og byggingarmál
- Velferð og fjölskyldan
- Stjórnkerfi
- Bæjarstjórn
- Stjórnsýsla
- Akureyri
- Útboð
- Fjármál og tölfræði
- Fyrir fjölmiðla
- Sveitarstjórnarkosningar 2022
- Mannlíf
- Þjónustugátt
Akureyrarbær rekur líflegt og skemmtilegt starf í félagsmiðstöðvunum Sölku í Víðilundi 22 og Birtu í Bugðusíðu 1.
Opnunartími: Alla virka daga kl. 08:50 – 15:45.
Sími: Víðilundur 462-7998 / Víðilundur eldhús 595-8021 /Bugðusíða 462-6055.
Forstöðumaður: Halla Birgisdóttir, netfang: hallabirgis@akureyri.is
Starfsemi félagsmiðstöðvanna er í stöðugri þróun með það að leiðarljósi að skapa fjölbreytni og mæta þörfum þeirra sem þangað sækja.
Í boði er fjölbreytt starfsemi, ýmiskonar námskeið, handverk, afþreying af ýmsu tagi og hreyfing auk fjölbreyttra viðburða. Bæklingur um starfsemi félagsmiðstöðvanna liggur frammi á báðum stöðum og í þjónustuveri bæjarins í Ráðhúsinu Geislagötu 9.
Hægt er að kaupa hádegismat í félagsmiðstöðvunum sjá nánar í verðskránni hér fyrir neðan.
Verðskrá fyrir Birtu og Sölku vorið 2023
Smellið á myndina hér fyrir neðan til að sjá dagskrá haustsins.
Félag eldri borgara á Akureyri (EBAK) hefur aðsetur í Bugðusíðu 1 og vinnur í nánu samstarfi við forstöðumann og starfsfólk að uppbyggingu og starfsemi félagsmiðstöðvanna beggja á Akureyri.
Einnig er boðið upp á félagsstarf í Hlíð fyrir þá sem þar dvelja.