Spjallgluggi hættur!

Kæru spjallandi safngestir! Síðasta árið hefur spjallgluggi á vefsíðunni okkar verið virkur og boðið upp á fljótari samskipti við okkur starfsfólkið. En ekki lengur.

Við erum alltaf að reyna að bæta okkur í þjónustunni og þetta var liður í því. Hver veit ... ? Kannski verður eitthvað annað spjallforrit prófað í framtíðinni en við þökkum viðbrögðin síðasta árið. Messenger á Facebook síðunni okkar er enn í góðum gír!

Um leið spyrjum við ykkur: Ef þið hafið einhverjar hugmyndir um það hvernig þjónustan okkar getur batnað, þá endilega hafið samband við okkur (hér á heimasíðunni í gegnum Hrís og hrós-liðinn, Facebook, Instagram, netpóst (bokasafn@amtsbok.is) eða með símtali (460-1250).

Sjáumst hress á Amtinu!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan