Rafbókasafnið

Auglýsing fyrir Rafbókasafnið í formi bókamerkis

Rafbókasafnið í hnotskurn

  • Til þess að tengjast Rafbókasafninu með snjallsímatæki byrjar þú á því að sækja app-ið OverDrive eða Libby.
  • Þú þarft gilt bókasafnskort og lykilorð (það sama og notað er á amt.leitir.is, athugið að ekki er hægt að nota rafræn skilríki í Rafbókasafninu) hjá Amtsbókasafninu.
  • Þú skráir þig inn á Rafbókasafnið með strikamerkisnúmerinu á bókasafnskortinu þínu (byrjar á GE...) og lykilorðinu (starfsfólk getur aðstoðað við að búa til þetta lykilorð sem má ekki innihalda tákn, bara stafi og tölustafi).
  • Þú getur valið hvort þú færð bók að láni í 7, 14 eða 21 dag.
  • Þú getur haft 5 bækur að láni í einu og sett inn 7 frátektir.
  • Bók sem hefur verið tekin að láni skilast sjálfkrafa að lánstíma liðnum og því er engin hætta á dagsektum.  Auðvitað er líka hægt að skila fyrr.
  • Hægt er að lesa rafbækur eða hlusta á hljóðbækur frá Rafbókasafninu í vafra í tölvum, spjaldtölvum og snjallsímum og því er ekki nauðsynlegt að hlaða niður neinum forritum til þess.
  • Viljir þú lesa eða hlusta án þess að vera nettengd(ur) þarftu að ná þér í Libby appið, OverDrive appið eða Adobe Digital Editions forritið og hlaða bókinni niður.

Libby appið

Libby er nýtt app frá OverDrive.  Libby er fáanlegt í öll helstu snjalltæki og má nálgast það í  Play Store (Android), App Store (IOS) og hjá Microsoft (Windows 10).
Hægt er að kynna sér appið betur á https://meet.libbyapp.com/.

OverDrive appið

  • OverDrive appið er fáanlegt fyrir iPhone®, iPad®, Android, Chromebook, Windows Phone, Windows 8 & 10, Kindle Fire HD og má nálgast t.d. í veiðeigandi veitum svo sem Play Store og App StoreLesa má nánar um appið og sækja það á http://app.overdrive.com/.

Lesbretti

  • Hægt er að lesa bækur Rafbókasafnsins á þeim lesbrettum sem notast við ePub formið.  Þetta eru flestar gerðir lesbretta aðrar en Kindle.  Ekki er hægt að lesa bækur Rafbókasafnsins í Kindle lesbrettum að Kindle Fire undanskildu.
  • Ef ætlunin er að lesa rafbók á lesbretti þarf að stofna Adobe ID-aðgang og hlaða niður Adobe Digital Editions forritinu á tölvu.
  • Bókinni er svo hlaðið niður í Adobe Digital Editions og færð þaðan yfir á lesbrettið.

Hafa samband

  • Ef þú hefur einhverjar spurningar eða ábendingar varðandi Rafbókasafnið sendu þá póst á bokasafn@amtsbok.is

 

Síðast uppfært 23. janúar 2023