Ritfangar - skapandi skrif

Mynd af opinni Macbook fartölvu og tvær hendur sjáanlegar að hefja skrif í lítilli stílabók

Annan hvern þriðjudag í vetur ætlum við að hafa opna fundi fyrir þá sem hafa áhuga á skapandi skrifum.

Þá verður annar hver fundur nýttur í að gera margs konar ritæfingar og ræða ólíkar nálganir á skrif, en hinir fundirnir fara í stutta upphitun og svo þögla skrifsetu, eða svokallaðar Ritfangabúðir, þar sem hver vinnur í sínum eigin skrifum.

Fólk á öllum aldri hjartanlega velkomið.

Sesselía Ólafsdóttir heldur utan um hópinn og hún getur veitt nánari upplýsingar á netfanginu sessy@amtsbok.is

Síðast uppfært 10. febrúar 2022