Amtsbókasafnið á um 200 borðspil til útláns en þau er að finna á 1. hæð safnsins. Boðið er upp á fjölbreytt úrval borðspila fyrir alla aldurshópa en sérstök áhersla er lögð á fjölskyldu- og barnaspil. Amtsbókasafnið vill með því efla framboð á ókeypis afþreyingu fyrir fjölskyldufólk.
Hér má sjá yfirlit yfir spil í eigu Amtsbókasafnsins. Öll borðspil eru lánuð í 30 daga.

Yfir vetrartímann er starfræktur spilaklúbbur fyrir börn á aldrinum 9-13 ára annan hvern mánudag frá kl. 17-18. Upplýsingasíða fyrir foreldra og forráðamenn er á Facebook.

Annan hvern miðvikudag eru borðspilaviðburðir fyrir fullorðna á Orðakaffi, til boða standa öll spil í hillu safnsins en þátttakendur eru jafnframt hvattir til þess að koma með sín eigin spil og kenna öðrum. Dagsetningar borðspilaviðburða er að finna í viðburðadagatali Amtsbókasafnsins.

Reglulega eru aðrir spilatengdir viðburðir svo sem skiptimarkaðir, Norræna spilavikan og Morðgátu kvöld.

Hrönn Björgvinsdóttir heldur utan um spiladeildina og má senda ábendingar og tillögur varðandi spil og spilaviðburði á netfangið hronnb@amtsbok.is 

Mynd af borðspilum uppröðuðum í hillum

Síðast uppfært 13. janúar 2023