Sigmundir Ernir - hádegisupplestur!

Sigmundur Ernir Rúnarsson heiðrar okkur með nærveru sinni föstudaginn 8. desember kl. 12:30. Huggulegur hádegisupplestur upp úr nýjustu bók hans.

Hann gaf nýverið út bókina Í stríði og friði fréttamennskunnar þar sem hann fléttar saman æviminningum sínum og uppgjöri við einstaklega litríkan fjölmiðlaferil í návígi við stærstu atburði í lífi þjóðarinnar. Um leið er frásögnin Íslandssaga sem nær frá forpokuðu klíkusamfélagi karlveldisins til frelsis og fjölbreytileika sem þó glímir alltaf við afturhaldið.

Heitt á könnunni. Öll velkomin!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan