Plastlaus september: Fataskipti á Amtinu

Langar þig í föt en viltu á sama tíma draga úr fatasóun? Mættu þá með spjarirnar á fataskiptimarkað á Amtsbókasafninu þriðjudaginn 24. september kl. 16-18. Rífandi stemning!

Að draga úr fatasóun er gott fyrir umhverfið. Fatnaður í dag er mikið til búinn til úr polyester, næloni, akríl og fleiri efnum sem eru í grunninn plastþræðir. Plastþræðirnir losna úr efnunum í þvotti og enda með skolvatninu í hafinu. Ef slíkum fataefnum er hent í sorpið brotna þau ekki niður frekar en annað plast. Verndum umhverfið okkar, veljum náttúruleg efni eða drögum úr fatasóun og óþarfa þvotti.

Fyrirkomulag:
Fataskiptin ganga þannig fyrir sig að fólk mætir með heilar og hreinar flíkur sem það hefur ekki not fyrir lengur og finnur önnur föt sem henta því í staðinn.

Öll fötin verða lögð í eitt púkk. Allir geta gefið eins mikið af fötum og þeir vilja og fengið í staðinn eins mikið af fötum og þeir vilja. Það er líka í góðu lagi að gefa föt en fá ekkert í staðinn eða öfugt.

Það sem verður afgangs munum við gefa til góðgerðasamtaka.

Hlökkum til að sjá þig!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan