Mannréttindaviðurkenning Akureyrarbæjar 2023!

Kæru safngestir! Við erum mjög stolt núna. Svo stolt að við sleppum föstudagsþrautinni að þessu sinni og leggjum áherslu á þessa viðurkenningu sem við vorum að fá.

Viðurkenningin er fyrir að auka hinsegin sýnileika í samfélaginu. Eitt af því sem kemur fram í nýrri stefnu okkar er einmitt: „Amtsbókasafnið er hlýlegur og vinalegur staður þar sem öll eru velkomin á eigin forsendum.“

Verðlaunaafhendinguna má sjá svo hér.

Mynd af viðurkenningarskjali frá Akureyrarbæ

 

Sjáumst á Amtsbókasafninu - safninu ykkar! Okkar allra! Til hamingju við öll!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan