Hrekkjavaka á Amtsbókasafninu er rétt handan við hornið!
Fimmtudaginn 31. október kl. 16.30 verður hin vikulega sögustund með hrollvekjandi sniði. Þá mun starfsfólk Amtsbókasafnsins klæða sig upp í hrekkjavökubúninga og hvetur unga safngesti (líka þá sem eru ungir í hjarta) til að gera slíkt hið sama. Verið hjartanlega velkomin! Múhahahaha...
Öll börn hjartanlega velkomin!