(Svör komin!) Föstudagsþraut 2024 nr. 1 - Fimm breytingar!

(Svör komin! Kæru safngestir! Hafið þið saknað þrautanna yfir hátíðirnar? Auðvitað! Og til að koma til móts við þessa þrautaelsku, þá er hér fyrsta þraut ársins! Vú hú!

Þetta er mynd sem er tekin af svokölluðum þemahillum í mynddiskadeildinni frábæru (þeirri bestu hér á Akureyri sko!!) hér á safninu og þarna má finna alls konar gull og gersemar til að horfa á.

En núna skulum við fókusa á breytingarnar fimm sem finna má á seinni myndinni. Þið þekkið þetta, vitið hvernig þrautin virkar og sláið kannski heimsmetið í leiðinni í að leysa þrautina. Það ku vera 17,8 sekúndur!

Rétt svör verða svo sýnd (með nýrri frétt eða uppfærslu á þessari) eftir helgi. 

En þangað til og alltaf ... þá minnum við á afgreiðslutímana okkar: mánudaga-föstudaga 8:15-19:00 og laugardaga 11:00-16:00. Það er hellingur að gerast hjá okkur á næstunni og endilega fylgist með okkur hér á heimasíðunni, með því að kíkja daglega á viðburðadagatalið og kíkið á samfélagsmiðlana okkar. Síðasta TikTokið hefur til dæmis vakið mikla athygli!

Góða helgi og munið að þetta er lengra ár en síðustu þrjú!

Mynddiskar í nokkrum hillum

 

Rétt svör :

 

Mynddiskar í hillum

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan