Bókamarkaður í september

Bókamarkaðurinn er mættur aftur og verður nú í sýningarrýminu hjá okkur út september-mánuð ... ef birgðir endast svo lengi!

Eins og venjulega þá eru flestar bækurnar á 100 kr., 10 bækur kosta 700 kr. og 20 stk. 1200 kr. Þessar upphæðir eiga líka við um nokkra mynddiska sem eru til sölu. Tímaritin eru á 20 kr. stk. og þarna má finna erlendar kiljur á 50 kr.

Á markaðinum verða líka ljóðabækur á 500 kr., bækur eftir Halldór Laxness á 500 kr. og mögulega einhverjar dýrari bækur sem þá verða merktar sérstaklega.

Margir demantar birtast á þessum bókamörkuðum okkar og væntanlega engin breyting á núna. Kíkið endilega á markaðinn, reglulega fyllt á!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan