Amtsbókasafnið á 196 ára afmæli í dag!!

Kæru safngestir! Um leið og við viðurkennum að 196 ár virka mikið, rúmlega þrefaldur eftirlaunaaldur, þá vitið þið það jafnvel og við að við erum svo ung í anda!

Ekki satt?

Amtsbókasafnið er elsta stofnun Akureyrarbæjar og var stofnað árið 1827. Það opnaði í núverandi húsnæði ekki fyrr en árið 1968 (nóvember).

Frá því að Amtsbókasafnið komst í viðunandi húsnæði hefur starfsemin vaxið og dafnað jafnt og þétt. Viðbyggingin flotta var tekin í notkun í mars 2004 og gerir alla aðstöðu miklu betri, hvort sem um er að ræða starfsmenn eða gesti. Sýningar, fyrirlestrar, námskeið og klúbbar eru stór hluti af starfinu sem er auðvitað miklu meira en að lána bara út safnefni. Reyndar hefur safnið þróast ört og við erum afar stolt af því. Þetta er safnið okkar allra.

Það má líka taka það fram hér að safnahúsið hýsir einnig kaffihús og Héraðsskjalasafnið á Akureyri.

Við gætum eytt löngum tíma í að rifja upp sögu safnsins og starfsemi, en látum hér nægja hlekki á heimildamynd um safnið og einnig undirsíðuna um söguna.

Til hamingju með daginn, við öll! (Einungis 4 ár í 200 árin!!)

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan