Tvöföld sögustund

Ævar þór Benediktsson, rithöfundur og vísindamaður.
Ævar þór Benediktsson, rithöfundur og vísindamaður.

Fimmtudaginn 23. nóvember kl. 16:30 verður tvöföld sögustund á Amtsbókasafninu. 

Við byrjum á því að lesa bókina Mig langar svo í krakkakjöt, eftir Sylviane Donnio. Að bókalestri loknum verður boðið upp á létt föndur og litablöð. 

Rúsínan í pylsuendanum er sú að Ævar Þór Benediktsson ætlar að koma kl. 17:00 og lesa upp úr nýútkominni bók sinni Þitt eigið ævintýri. Bókin er fjórða bókin í ''Þín eigin'' röðinni en þar ræður lesandinn ferðinni sjálfur. Ævar ætlar að vera með upplesturinn á Orðakaffi og hentar hann sérstaklega börnum á aldrinum 7 ára og eldri. 

Allir sem koma að hlusta á Ævar lesa úr nýju bókinni sinni – Þitt eigið ævintýri, geta sett nafnið sitt og símanúmer í pott. Einn heppinn þátttakandi mun svo vinna bókina hans Ævars. Dregið verður út 27. nóvember og hringt verður í vinningshafa.

Litum, föndrum og höfum gaman saman!

 

Amtsbókasafnið er á Facebook og Instagram.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan