Svartar fjaðrir 100 ára: Gestaboð í Hofi

Svartar fjaðrir - Gestaboð í Hofi
10. nóvember kl.15:00

Menningardagskrá í tilefni af 100 ára útgáfuafmæli fyrstu ljóðabókar Davíðs Stefánssonar Svartar fjaðrir.

Fáar íslenskar ljóðabækur hafa vakið aðra eins athygli og aðdáun og ljóðabókin Svartar fjaðrir sem var fyrsta ljóðabók Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi sem hefur verið gefin út 13 sinnum frá 1919-2011. Ljóðin flugu beint í hjarta landsmanna og eru þar enn. Amtsbókasafnið á Akureyri, Davíðshús, Menningarhúsið Hof og Minjasafnið á Akureyri taka höndum saman og bjóða gestum til stofu í Menningarhúsinu Hofi í tilefni afmælisins.

Í gestaboðinu í Hofi verður sungið og spjallað. Gestgjafinn María Pálsdótttir leikkona og frumkvöðull býður rithöfundinum og alþingismanninum Guðmundi Andra Thorssyni og áhugafólkinu Pétri Halldórssyni og Valgerði Bjarnadóttur til stofu til að ræða um líf og list skáldsins frá Fagraskógi, en útgangspunkturinn er ljóðabókin Svartar fjaðrir. Ljóð Davíðs eru opinská og ástríðufull ljóð sem bæði heilluðu og skelfdu og gefa tilefni til fjölbreyttrar menningardagskrár því munu Kammerkór Norðurlands, tónlistarkonurnar Helga Kvam og Þórhildur Örvarsdóttir og Ólafur Sveinn Traustason ásamt Eddu Borg og Styrmi Traustasyni koma fram og leika gömul sem og frumsamin lög við ljóð Davíðs.

Menningardagskráin fer fram í Hamraborg og er öllum opin meðan húsrúm leyfir. Enginn aðgangseyrir.

Viðburðurinn er styrktur af Sóknaráætlun og Norðurorku.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan