Mennska bókasafnið

Það er ómetanlegt að geta miðlað mismunandi reynsluheimum í formi samtals.

Þann 26. ágúst næstkomandi, á Akureyrarvöku, ætlum við halda viðburð á Amtsbókasafninu þar sem lánaðar verða út Mennskar bækur.

Á hinu Mennska bókasafni gefst tækifæri til þess að spjalla í um hálftíma við einstaklinga sem standa frammi fyrir ólíkum og mögulega mjög framandi áskorunum og heyra þeirra hlið í þeirra eigin orðum.

 

Fyrsta mennska bókasafnið opnaði í Danmörku árið 2000 og síðan þá hafa viðburðir á vegum þeirra farið fram í 85 löndum.

Dæmi um bókatitla sem hafa verið á viðburðum úti í heimi eru til dæmis:

ADHD, Óvirkur alkóhólisti, Tvíkynhneigð, Kulnun, Innflytjandi.

 

Viltu komast að því hvaða mennsku bækur verða í boði?

Kíktu á Amtsbókasafnið á bilinu 13:00-16:00 laugardaginn 26. ágúst!

Þar verðum við með bókalista í anddyrinu og þið getið tekið frá þá titla sem þið eruð spenntust fyrir ef þeir eru þegar í útláni þegar þið komið.

Fyrstir koma, fyrstir fá!

Enginn aðgangseyrir!

 

Mennska bókasafnið er styrkt af sóknaráætlun SSNE

Viðburðurinn er hluti af Akureyrarvöku.

Fleiri spennandi viðburði má finna á www.akureyrarvaka.is

#akureyrarvaka @akureyrarbaer

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan