Kæru safngestir! Eins og þið hafið tekið eftir, þá hefur nýr rekstraraðili kaffiteríunnar á Amtsbókasafninu tekið til starfa. Hann heitir Moe og staðurinn heitir Lestur Bistro.
Moe þekkja margir nú þegar en hann mun bjóða upp á hefðbundinn og fjölbreyttan mat í hádeginu ásamt vegan líka. Einnig býður hann upp á drykki, kaffi, te og alls kyns bakkelsi.
Lestur Bistro verður opið á virkum dögum frá 11:30-17:30!
Moe / Lestur Bistro eru líka með síður á samfélagsmiðlunum. Kíkið endilega á þær!
Áfram Moe! Vertu velkominn og gangi þér vel!