Ný kökuform eru komin í hús og um að gera að koma á safnið, skoða úrvalið og fá lánað.
Það má segja að óhefðbundnu útlánin okkar séu vinsælli með hverjum deginum og þar eru kökuformin engin undantekning! Nýr bæklingur með öllum formunum er aðgengilegur á heimasíðunni ... og til að auðvelda leitina þá er hlekkurinn hér líka.
Fótbolti, bangsi, tölur, Stjörnustríð ... fermingar? afmæli? ... það er svo margt til!
Og bara til að fyrirbyggja misskilning, þá krefjumst við ekki þess að fá smakk þegar þið skilið formunum! (En munið að þrífa þau vel ;-) )